Virðingarvakningin Í fréttum er þetta helst hófts þann 20. mars 2014 með pistli Emblu Guðrúnar Ágústsdóttur ‘Lætur píkuna ekki aftra sér’ þar sem hún fjallaði um þá orðræðu sem ríkir í fjölmiðlum um fatlað fólk. Í kjölfarið birti Tabú myndaalbúm á facebook þar sem safnað var saman Íslenskum hetjufréttum af fötluðu fólki. Í kjölfar myndbirtingana á facebook útbjó Tabú gervifréttir þar sem fjallað er um ófatlað fólk með sama hætti og fatlað fólk.

Samkvæmt Fréttatímanum lætur Ólafur fötlun sína ekki aftra sér frá því að láta drauma sína rætast og vera opinn fyrir ástinnni.

Samkvæmt hun.is lætur VanHoose fötlun sína ekki stoppa sig í því að koma fram og syngja með ótrúlegri rödd.

Samkvæmt bleikt.is lætur ótrúlegt afreksfólk fötlun sína ekki stoppa sig í því að skara fram úr á sviði íþróttanna.

Samkvæmt Fréttablaðinu láta systurnar Áslaug og Snædís ekkert stöðva sig og láta drauma sína rætast þrátt fyrir fötlun sína.

Samkvæmt mbl.is lætur Freyja fötlun sína ekki stoppa sig og ætlar að taka þátt í Reykjavíkurmaraþoninu.

Bleikt.is birti grein um fatlaðan mann með fyrirsögninni: Lætur alvarlega fötlun ekki stöðva sig: „Ég er bara venjuleg manneskja“ Upphaf fréttarinnar er eftirfarandi: Maður sem fæddist með svo alvarlega fötlun að höfuð hans snýr á hvolf hefur vakið athygli og veitt innblástur með sögu sinni og ræðum sem hann flytur um allan heim. Sjá frétt: http://bleikt.pressan.is/lesa/laetur-alvarlega-fotlun-ekki-stodva-sig-eg-er-bara-venjuleg-manneskja/
Væri þetta helst í fréttum?

Væri þetta frétt? Mynd er af Bjarna Benediktssyni ráðherra. Fyrirsögnin: Lætur alvarlega ófötlun ekki stöðva sig: „Ég er bara venjuleg manneskja.“ Texti í frétt: Maður sem fæddist með svo alvarlega ófötlun að höfuð hans snýr rétt hefur vakið athygli og veitt innblástur með þingstörfum sínum og ráðherrastarfi út um allan heim.